Hlaðan er veislusalur sem getur tekið allt að 60 manns í sæti. Hentar einstaklega vel fyrir þorrablót, ættarmót og þess háttar.
Hlaðan gefur einstaka upplifun fyrir veislugesti, hráleikinn fær að njóta sín. Lítið eldhús er í Hlöðunni ásamt fylgihlutum til að útbúa litla veislu. Mörg ættarmót hafa verið haldin í hlöðunni ásamt þorrablótum og veislum af ýmsum toga.





















