Sveitarsetrið

Á Draflastöðum í Fnjóskadal er hægt að fá gistingu í ýmsum gæðaflokkum s.s. gistiheimili með uppbúnum rúmu, svefnpokagistingu og tjaldstæði. Einnig er hægt að kaupa veitngar á vægu verði, bæði máltíðir, léttvín og bjór.

Sveitarsetrið Draflastöðum


 

Þegar ekið er frá Akureyri austur um Víkurskarð er komið ofan í Fnjóskadal. Eftir dalnum rennur Fnjóská, vinsæl veiðiá og jafnframt lengsta dragá landsins.  Draflastaðir eru vestan megin þegar komið er yfir víkurskarð og fyrsti afleggjari í norður liggur að bænum. Draflastaðir eru vel staðsettir fyrir skoðunarferðir um Norðurland, Akureyri (25 km), Mývatn (75 km), Húsavík (70 km) og Goðafoss eru í  innan við klukkustundar akstursfjarlægð.
Draflastaðir eru við veg 834, 5 km. frá þjóðvegi 1.   

 

Á Draflasöðum er gistiheimili með 10 herbergi, 2 - 4 manna.  Í boði er uppábúin rúm eða svefnpokapláss, morgun- og kvöldmatur.  Á staðnum er heitur pottur, eldurnaraðstaða og matsalur með einstaklega fallegu útsýni yfir sveitina.  Umhverfið er einstaklega friðsælt, fallegt og tilvalið til afslöppunar og útivistar.

Veislusalurinn Hlaðan getur tekið allt að 60 manns og er tilvalinn fyrir veislur, þorrablót og þess háttar.

 

 

Sveitarsetrið bíður upp á skemmtilegar fjórhjólaferðir allt árið um kring, allt frá 30 mín ferðir til dagsferðar. Í boði eru 6 ný tveggjamanna fjórhjól ásamt leiðsögumanni.

Sveitasetrið býður fjölbreyttar hugmyndir fyrir hópa sem vilja slaka á, funda eða einfaldlega njóta lífsins í einstöku umhverfi.  

 

 

 


Við setjum saman heildarpakka eftir þínum óskum. Pakkarnir geta innihaldið rútuferðir, fjórhjólaferðir, mat og gistingu.


 

Sendu okkur fyrirspurn:  Email: siddi@sveitarsetrid.is   Sími: 8980444

 

 

Framsetning efnis

aldeyjarfoss.jpgdettifoss.jpggigur.jpggodafoss.jpggodafoss2.jpggodafoss3.jpghead1.jpghestar.jpghverarond.jpghverfjall.jpgjardbod.jpgleirhnjukur.jpgmosi.jpgsolarlag.jpg
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf